Lurkurinn

10.04.2007 19:44:12 / lurkur

hæ og bæ ;)

Er Hættur með bloggið hér og búin að færa mig yfir á http://www.myspace.com/lurkur


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.11.2006 02:31:26 / lurkur

hæhæ!!

Já kappinn búin að vera steingeldur í þessu bloggi! Enda búið að vera nóg að gera síðustu fjórar vikur. Æfingarnar hafa gengi vel tók 3x8 130 kg í þessari viku. Þetta er nokkuð gott miðað við það að Lurkurinn er en að læra að gera þessa æfingu. Bekkurinn er líka allur að koma til komin rétt yfir 100 kg 3x8. Hugsa samt að mar taki næstu viku í 5x5 en í des byrjar body building og svo tekur brennslan við í janúar. Ætli ástæðan að ég sé ekki að skrifa smá færslu er því að Íris sneri upp á handlegin kappanum og hótaði honum lífláti ef að hann myndi ekki skrifa smá... ok kannski ekki alveg.. Enda myndi hún aldrei ráða við mig. En Hún Íris bendi Lurkinum á þá staðreynd að hann væri orðin steingeldur í blogginu. Þetta mun vonandi lagst þar sem að kappinn er búin í prófum og hefur vonandi aðeins meiri tíma á milli handana. Þetta verður að duga í bili.. Laters ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 22:15:36 / lurkur

þraut!!!

http://members.home.nl/saen/Special/Zoeken.swf findu 3 villur

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 20:33:52 / lurkur

ljósbláustuttbuxurnar

Jæja kíkti aðeins á hana til Maju vinkonu mína í gærkvöldi og horfðum við á myndina inside man. Alveg fín mynd bjóst samt við meira af actioni þar sem að þetta er nú bankarán!?! En það er alltaf gaman að henni Maju og á marr aldrei nóg af vinnum. Svo erum við Bubbi bara búnir að vera einir í Gyminu þessa viku. þar sem að Raggi dk Er búinn að vera að stússast með eitthvað lið frá Japan en það þarf líka að sína þessum uglendingum þessa fögru náttúruperlu sem að skartar fullt, fullt af skurðum, grindverkjum og rullum sem að japla á dómum dósum og síkaertupökkum við vegarkarminn. Svo var Boris að kynna mér fyrir nýrri reglu sem að hljómar þannig að eftir hversu sterkur þú ert þá ávinur þú þér rétt á að vera í ljótum buxum.. Svo bendi hann á ljósbláustuttbuxurnar með mínar blómamunstrinu og sagði “Og þú ert ekki orðin nógu sterkur til að vera í svona ljótum buxum!” sko ef að hann væri ekki búin að vinna sterkasti maður Íslands tvisvar og keppa erlendis nokkru sinum í sterkasti maður heims þá hefði ég tekið hann í gegn sko hehehe. En Boris er búin að kenna kappanum mikið og er sú kennsla alveg ómetanleg. Þetta verður að vera nóg í bili, heyrumst...

» 5 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 21:34:21 / lurkur

Kannski

Kannski verðum við að hitta ranga fólkið áður en við hittum rétta fólkið, svo að við kunnum að vera þakklát þegar við hittum loksins þann sem hentar okkur.

Kannski opnast dyr hamingjunnar á einum stað um leið og þær lokast á öðrum, en oft störum við svo lengi á lokuðu dyrnar að við sjáum ekki hinar sem hafa opnast.

Kannski er bestu vinurinn sá sem þú getur rólað þér með á veröndinni án þess að segja orð og síðan gengið í burtu og liðið eins og þú hafir átt eitt besta samtal ævi þinnar.

Kannski er satt að við vitum ekki hvað við höfum átt þangað til að við missum það, en það er líka satt að við vitum oft ekki hvers við höfum saknað fyrr en við öðlumst það. Það eitt að gefa einhverjum alla okkar ást tryggir ekki að viðkomandi elski okkur á móti. Ekki búast við ást í skiptum fyrir ást; bíddu þangað til ástin vex í hjörtum annarra og ef það gerist ekki, skaltu þakka fyrir að ástin hafi vaxið og dafnað í þínu hjarta.

Kannski tekur það einungis mínútu að brjóta einhvern niður, klukkutíma að láta sér líka við einhvern og einn dag að verða ástfanginn af einhverjum, en það getur tekið lífstíð að gleyma einhverjum.

Kannski ættir þú að reyna að ná í einhvern sem fær þig til að brosa, vegna þess að eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt. Ekki fara eftir útliti, það getur blekkt. Ekki fara eftir auðævum, þau geta horfið. Finndu einhvern sem fær hjarta þitt til að brosa.

Þegar þú fæddist varstu grátandi og allir í kringum þig voru brosandi.

Lifðu þannig að þegar þú deyrð verðir þú brosandi og allir í kringum þig grátandi.

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 20:07:10 / lurkur

bla!!!

Búin að vera að vinna mikið eins og venjulega og er marr búin að fara soltið seint á æfingar. Er að taka smá pásu frá power prófgraminnu enda búinn að vera á því í 4 mánuði og hefur lurkurinn náð góðum krafti og góðri þyngt. Nú tekur við smá body building prófgram við þar sem að það verða fleiri endurtekningar og fleiri æfingar út restina af árinu. Eftir áramót tekur svo við undirbúningur fyrir Íslandsmeistaramótið í fitness sem að verður næstu páska, ef allt gengur vel verður það líka Loded Cup í dk eftir páskana. Svo að nú er marr byrjaður að leita af styrktaraðilum fyrir keppnina. Það helsta í fréttum er að lurkurinn þarf að gangast undir hnífinn bráðum. Málið er að þegar að ég þyngdist svo hratt á sínum tíma og létist svo aftur á engum tíma gerðist það að nokkrir í fitukyrtlar fengu einhverskonar ofvöxt. Er með einn á sitthvorum handleknum, nokkra á framanverðu á fótelgjum (rectus femoris) og svo tvo hægra mjóbaki. Allt eru þetta bara litlir hnúðar sem að sjást ekki nema þegar að búið að skera niður nema einn sem að er á bakkinu sem að getur orði næstum eins stór og gólfkúla :( Svo er kallinn bara að verða gamalmeni! Er að verð 25ára!!! Shit! Spurning hvort að grái fiðringurinn fara að taka sig upp. Þá get ég byrjað að fara í ljós 10 sinnum á viku, aflitað hárið og náð mér í 1stk. sportbíl! Hehe... Skólinn gengur vel búinn að skila inn nokkrum verkefnum sem að hafa bara gengið vel enda er þetta eitthvað sem að ég hef mikinn áhuga á, líka búinn að vera að þessu síðan 97 og ekki slæmt að getað náð sér í diplómu á því sviði :) Ætla að segja þetta gott að sinni þar sem að smá lærdómur bíður mín.

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 22:02:31 / lurkur

Heim!

Komin heim frá london og alveg dauðþreyttur. Seigi ykkur frá henni seinna, en þetta var alveg æðisleg ferð ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 15:55:08 / lurkur

blabla

Búinn að vera rosalega lélegur að skrifa en það er líka búið að vera mikið að gera hjá lurkinum. Vonast til að setja eitthvað skemmtilegt inn fyrir helgi.

» 5 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 20:30:51 / lurkur

Það er búið að vera nóg að gera.

Það er búið að vera nóg að gera hjá Lurkinum mikil vinna og strangar æfingar! Nú langar lurkinum að prófa sig áfram og byrja að þjálfa sig meira í bekknum og skoða þann möguleika að keppa í þeirri frábæru grein. Enda þegar að marr sér menn eins og Ísleif og Valda slátra bekknum er ekki annað en hægt að fyllast af áhuga og metnaði fyrir þessari Keppnisgrein. Sá Ísleif taka 1x8 125.kíló og svo 2x8 140kg! í gær og fór létt með það. Svo Var Valdi að taka 5x5 190.kíló með upphitun! Enda er Valdi með tæknina alveg á hreinu og minnir helst á GLUSATJAKK!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.08.2006 17:04:01 / lurkur

comic

Photobucket - Video and Image Hosting


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 22:27:44 / lurkur

Þá er Lurkurinn búinn í sumarfríi og byrjaði að vinna.

Byrjaði 1.ágúst. Það verður fínt að taka góða törn núna fyrir verslunarmanna helgina vona bara að ég fari ekki að léttast eftir að vera byrjaður að vinna. Síðasti mánuður er búinn að ganga svakalega vel, búinn að eiga frábæran tíma með litla kút og búinn að ná góðum árangri í Gyminu. Þetta er án efa besti staðurinn til að æfa búinn að setja fullt af kjöti utan á mig og er að ná ágætis þyngdum. Boris hefur hjálpað mér mikið og Valdi líka svo er bara svo góður andi þarna!!! Er alltaf að frétta af fleirum gaurum sem að ætla að keppa næstu páska og eru þegar byrjaðir að æfa fyrir hana! Sem að er mjög gott þar sem að það setur pressu á man ;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 12:40:33 / lurkur

Valdi Kaldi!

Valdi tók þessa svakalegu stellingu fyrir framan myndavélina hjá Lurkinum. Ekki er alveg vitað aðdragandann að þessu en þetta hefur örugglega bara verið í hita leiksins enda æfir allt heitasta fólkið í Gym-80. Ef að þið heyrið ekkert í mér á næstunni verður það útaf því að Valdi hefur slátrað mér fyrir að birta þessa sjóðandi heitu mynd.
Photobucket - Video and Image Hosting


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 19:50:47 / lurkur

Skaftafell

Áður en að við kátum byrjað ferðina þurfti Lurkurinn að græja sjálfan sig upp. Byrjuðum því að fara í Höfn. Þar sem að mér tókst loks að finna góða gönguskó sem að pössuðu á mig og þennan fína fínna jaka líka og fórum svo í Jökulsárlón.
Photobucket - Video and Image Hosting

Photobucket - Video and Image Hosting

Allir um borð :)
Photobucket - Video and Image Hosting

Litli Lurkur ekkert smá sáttur enda fékk hann ísmola úr lóninu.
Photobucket - Video and Image Hosting

Hér er svo eitt af ísjökonum sem við skoðuðum.
Photobucket - Video and Image Hosting

Daginn eftir var litli kútur mikið með ömmu sinni enda var hún næstum ekkert búinn að sjá hann í allt summar og búinn að sakna hans mikið. Hún keypti handa honum fjarstýrðan bíl sem er svakalega flottur fyrir utan það að kúturinn gat valla haldið á fjarstýringunni þar sem að hún er ansi stór!?!
Photobucket - Video and Image Hosting

Aftur á móti var ég mest allan daginn upp á jökli eða um 8-9 tíma. Fór fyrst upp með leiðsuguhóp og var það mjög fróðleg fer. Hér eru tvær myndir frá jöklaferðinni. Þar sem að það var ekki allt of gott veður sér maður nú ekki mikið :(
Photobucket - Video and Image Hosting

Photobucket - Video and Image Hosting

Þegar að þessari fer var lokið fórum við aftur í Skaftafell en stuttu seinna var mér boðið að koma með aftur upp á jökul þar sem að nokkrir klifurkettir frá þýskalandi voru að fara upp á jökul til að klifra í ísnum. Þetta var rosalega gaman sérstaklega þar sem að við vorum öll frekar reynd og gátum þá sett stefnuna á aðeins erfiðari sprungur. Við byrjuðum á því að fara yfir basic atriði í sambandi við ísklifur sem var nokkuð gott þar sem að Lurkurinn hefur ekki klifrað í nokkur ár. Eftir að við höfðum gengið í þrjá tíma upp á jökul fundum við góða sprungu sem að hægt var að síga niður í og klifra svo aftur upp. Þetta voru einhverjir 8-9 metrar niður í sprunguna og þó nokkuð erfitt þar sem að vegurinn hallaði mikið inn þegar komið var ofan í sprunguna. Hér er einn mynd af Lurkinum þegar að hann var kominn úr sprungunni.
Photobucket - Video and Image Hosting

Eftir að hafa farið nokkru sinum niður í sprunguna var maður búinn á því! Var þá haldið aftur í Skaftafell til að hvíla sig :)

Daginn eftir fórum við að sjá Svarafoss enda ekki hægt að fara til Skaftafell án þess að ganga upp að Svartafossi.
Photobucket - Video and Image Hosting

Photobucket - Video and Image Hosting

Svo rétt áður en haldið var heim ákvað litli kútur að taka þetta svakalega pose fyrir myndavélina. Enda er hann algjör töffari :)
Photobucket - Video and Image Hosting


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 13:42:49 / lurkur

Gönguskór!

Búinn að fara um allt höfuð borgarsvæðið að leita af gönguskóm og það er ekkert að fá! Allaveganna ekkert í minni stærð. Þetta er einni ókosturinn við að vera Lurkur :frown: Þar sem að það virðist eingin eiga skó í 48:!:

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2